Flýtileiðir

Næstum alveg eins og …

Það er ýmislegt sem vaknar til lífsins þegar sól tekur að hækka á lofti eins og hún hamast við þessa dagana. Það er að vísu aðeins of snemmt að segja að náttúran sé að vakna til lífsins, í það minnsta þarna utandyra, en hnýtarar eru að vakna hver af öðrum. Flugur taka að birtast á samfélagsmiðlum og bloggsíðum, ásamt því að fyrirspurnum eins og; Hver hannaði þessa, Áttu uppskriftina að … eða Hvaða efni er í … tekur að rigna inn. Sumir gauka skemmtilegum lýsingum á flugu að FOS og biðja um hjálp eins og nafnlaus gerði um daginn „Fluga sem er næstum alveg eins og Black Ghost, nema brúnn búkur og allt annað efni í væng. Veistu hvað hún heitir?“ Hnýtarar eru greinilega að vakna til lífsins, en stutt í febrúar og Febrúarflugur.

En það er ýmislegt annað sem vaknar á þessum tíma ársins, sumt í tengslum við fluguhnýtingar, annað ekki. Eitt af því sem tengist fluguhnýtingum eru spurningafrænkurnar eilífu; „Hvenær er fluga fluga eða spúnn?“ og „Hvenær er fluga fluga eða ormur?“ Ég ætla að láta báðum þessum spurningum ósvarað, það eru eflaust einhverjir sem brenna í skinninu að svara þeim þannig að ég stíg bara úr pontu og gef orðið laust. Og á meðan einhver herðir sig upp í að svara þessu, þá langar mig að nefna allt aðra spurningu sem vaknar iðulega á þessum árstíma; „Hvað þarf að breyta flugu mikið þannig að hún teljist ný og eigi að fá nýtt nafn?“ Úff, þarna er ég örugglega að skjóta púðurkerlingu inn á Þrettánda degi jóla og hreint ekki víst að einhver vilji svara þessu. Tökum einhverja þekktustu silungaflugu Íslands sem dæmi; Peacock. Ég hef það eftir mjög áreiðanlegum heimildum að upphaflega hnýtti Kolbeinn þessa flugu skv. þessari uppskrift:

Öngull: legglangur 10 – 12

Þráður: svartur

Búkur: 5 – 6 stk. páfuglsfanir, vafðar um hnýtingarþráðinn

Haus: 1/3 Globrite #5 (appelsínugulur flurocent þráður) – 2/3 svartur hnýtingarþráður

Ég held að flestir bæti einhverju af eftirtöldu við þessa flugu í dag:

  • vír í vöf yfir búkinn til styrkingar, koparlitaður, gylltur eða einhver annar litur
  • kúlu til þyngingar
  • skotti úr flurocent efni eða ull í einhverjum lit
  • hringvafin hænu- eða hanafjöður við hausinn / kúluna, jafnvel CDC fjöður
  • og eflaust ýmsu fleira sem mér dettur ekki í hug að setja á Peacock

FOS leikur forvitni á að heyra álit hnýtara á nafnavenjum flugna og þá sérstaklega ef þeir bregða frá upprunalegri mynd þeirra við hnýtingar og hefur því hleypt af stokkunum smá könnun sem hnýtarar eru beðnir um að taka þátt í. Niðurstöður hennar verða síðan birtar 1. febrúar þegar Febrúarflugur fara í gang enn eitt árið.

Senda ábendingu

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *