Ef svo ber undir að þú setjir í fisk og ert á þeim buxunum að vilja sleppa kvikindinu aftur en hann virðist ekki vera á þeim nótunum, ólmast og djöflast þannig að það er ekki nokkur leið að ná flugunni úr honum, prófaðu þá að snúa fiskinum á hrygginn.
Flestir fiskar sem snúið er á hvolf skilja þá hvorki upp né niður í tilverunni, verða eins og lamaðir og þá er lítið mál að eiga við fluguna á meðan þeir reyna að ná áttum.
Senda ábendingu