Þann 11. júní 2014 birti ég hér á síðunni frétt þess efnis að ég hefði hlotið inngöngu í Ármenn, félagsskap veiðimann sem berst lítið á og hugsa fyrst og fremst um gott sambýli við allt sem að veiðum lýtur. Á þessum tæpum þremur árum sem liðin eru frá inngöngu minni í Ármenn hef ég átt einstaklega gott samstarf við fjölda félagsmanna og notið leiðsagnar mér eldri og reyndari félaga í öllu því sem að stangveiði með flugu lýtur.
Á aðalfundi Ármanna sem fram fór þann 8. mars, lét Árni Þór Sigurðsson af störfum sem formaður eftir fjögur farsæl ár í því embætti. Það er missir af jafn öflugum formanni og Árni Þór reyndist, en maður kemur í manns stað og sá veit fyrir víst að hægt verður að leita til fyrrum formanns, rétt eins og annarra félagsmanna, í því starfi sem hann var kosinn til næstu tvö árin.
Ármenn er öflugur og þéttur félagsskapur yfir 300 veiðimanna sem umfram allt njóta þess að veiða og vera í sem nánustu tengslum við náttúruna. Félagsstarfið hefur einkennst af gróskumiklu vetrarstarfi þar sem hæfileg blanda gamans og alvöru hefur ráðið för í viku hverri frá hausti og fram á vor. Vikuleg hnýtingarkvöld Ármanna sem ganga undir nafninu Skegg og skott hafa laðað félagsmenn til sín á mánudagskvöldum og reglulegir fræðslufundir á miðvikudagskvöldum hafa ekki síður verið burðarás í vetrarstarfinu. Þegar vorar færa Ármenn sig út, safnast saman við kastæfingar og fínpússa í sameiningu þá list að kasta flugu fyrir fisk svo sómi sé að.
Starf félagsins og markmið eru vel mörkuð í 2. grein laga þess:
- Að auka hróður þeirrar íþróttar að veiða vatnafisk á flugu.
- Að efla virðingu veiðimanna fyrir íslenskri náttúru.
- Að hvetja til góðrar umgengni, hófsemi við veiðar og háttvísi á veiðislóð.
- Að stuðla að því að félagar geti stundað stangaveiði fyrir hóflegt verð.
- Að auka rétt almennings til veiða á stöng í almenningum og þjóðlendum.
Þessi markmið hafa alltaf fallið mér mjög í geð og tóna vel við það ég hef reynt að koma á framfæri hér á FOS.IS og því er mér það mikill heiður að hafa verið kosinn formaður Ármanna á framangreindum aðalfundi þann 8. mars.
Ég vonast til að eiga gott og farsælt samstarf við Ármenn í anda félagsins, en síðast en ekki síst vonast ég til þess að eiga eftir að kynnast dyggum lesendum þessarar síðu innan félagsstarfs Ármanna á komandi mánuðum. Ég bendi áhugasömum á að kynna sér upplýsingar um aðildarumsókn á nýjum vef Ármanna sem nálgast má hérna.
Ármaður #861
Kristján Friðriksson, formaður










Senda ábendingu