Ertu í minnsta vafa um það hvaða flugur þú ætlar að nota næsta sumar? Ef svo, þá gæti verið tilvalið að kíkja á þær 240 flugur sem hafa verið settar inn á Febrúarflugur. Það getur þú einmitt gert með því að smella hérna.
Ef þú veist síðan alveg hvaða flugur þú ætlar að hnýta og prófa, en átt ekki gæjurnar til verksins, þá gæti verið sniðugt að koma í Árósa, Dugguvogi 13 á mánudaginn kl. 20 og skoða hnýtingargræjurnar frá Árvík sem þar verða kynntar. Svo verða örugglega einhverjir snillingar á staðnum sem verða að hnýta og enn aðrir sem koma bara til þess að hitta mann og annan og tilvalið er að góma í spjall um hvað eina sem þig langar að fræðast um.










Senda ábendingu