Fylgifiskur Hlíðarvatnshreinsunar Ármanna ár hvert er að þeir sem leggja gjörva hönd á plóg fá að baða flugur sínar að loknum vinnudegi í Hlíðarvatni. Það var einmitt það sem ég hafði fyrir stafni þessa helgi.
Uppbyggilegi hluti þessarar frásagnar er að það safnaðist í þrjá stóra svarta af rusli á laugardaginn á svæði Ármanna. Hreint land, fagurt land. Eins og kunnugt er þá er alltaf gott verður í Selvoginum og þannig var því einnig farið á sunnudaginn. Á meðan höfuðborgarbúar og nærsveitungar fóru á fætur í rigningu og súld, var hreint og beint glampandi sól og blíða við Hlíðarvatnið og ekki eftir neinu að bíða, Hlíðarsel skildi málað.
Af veiði undirritaðs er ekkert að frétta, punktur.
| Bleikjur í ferð | Bleikjur alls | Urriðar í ferð | Urriðar alls | Fj.ferða |
|---|---|---|---|---|
| 0 / 0 | 0 / 0 | 0 / 0 | 0 / 1 | 2 / 4 |









Senda ábendingu