Veiðidagur fjölskyldunnar verður haldinn næstkomandi sunnudag, 28. júní. Þá gefst landsmönnum kostur á að veiða án endurgjalds í fjölmörgum vötnum víðsvegar um landið. Landssamband Stangaveiðifélaga hefur staðið fyrir Veiðidegi fjölskyldunnar í á þriðja áratug ásamt veiðiréttareigendum.
Hugmyndin á bak við daginn er að kynna stangveiði sem fjölskylduíþrótt. Þetta árið verða 32 vötn í boði á veiðideginum. Allar upplýsingar um vötnin má nálgast á vef Landssambands Stangaveiðifélaga.










Senda ábendingu