Loksins, loksins. Nei, ekki misskilja mig, það kom ekki fiskur á land en ég fór upp að Elliðavatni seinni partinn og baðaði tvær flugur, flækti allt of grannt taumefnið og endaði á því að festa fluguna í eina trénu í mílu fjarlægð. Örlitlar ýkjur, en sagan er skemmtilegri þannig.
Það gekk á með tveimur dropum og einu til tveimur snjókornum þótt hitamælirinn segði 5°C og það kulaði óþægilega ofan úr Heiðmörkinni, en mikið rosalega var gott að komast að vatninu. Ég böðlaðist ekkert lengi í vatninu, svona rétt aðeins á meðan konan lék Joan Wulff á grasblettinum við Elliðavatnsbæinn og þangað til kuldinn gerði óþægilega vart við sig í tánum á mér. Vatnið var sem sagt heldur kalt en samt var líf, fluga á vatninu og töluvert um uppitökur.
Nú fer þetta alveg að detta í gang, held ég. Verð trúlega samt að láta sjá mig á Klambratúni á morgun; JOAKIM’s dagur og Stefán Hjaltested örugglega til í að skamma mig fyrir léleg köst.
Veiðitölur ársins
| Bleikjur í ferð | Bleikjur alls | Urriðar í ferð | Urriðar alls | Fj.ferða |
|---|---|---|---|---|
| 0 / 0 | 0 / 0 | 0 / 0 | 0 / 0 | 0 / 2 |









Senda ábendingu