Flýtileiðir

Elliðavatn 9. maí

Loksins, loksins. Nei, ekki misskilja mig, það kom ekki fiskur á land en ég fór upp að Elliðavatni seinni partinn og baðaði tvær flugur, flækti allt of grannt taumefnið og endaði á því að festa fluguna í eina trénu í mílu fjarlægð. Örlitlar ýkjur, en sagan er skemmtilegri þannig.

Það gekk á með tveimur dropum og einu til tveimur snjókornum þótt hitamælirinn segði 5°C og það kulaði óþægilega ofan úr Heiðmörkinni, en mikið rosalega var gott að komast að vatninu. Ég böðlaðist ekkert lengi í vatninu, svona rétt aðeins á meðan konan lék Joan Wulff á grasblettinum við Elliðavatnsbæinn og þangað til kuldinn gerði óþægilega vart við sig í tánum á mér. Vatnið var sem sagt heldur kalt en samt var líf, fluga á vatninu og töluvert um uppitökur.

Nú fer þetta alveg að detta í gang, held ég. Verð trúlega samt að láta sjá mig á Klambratúni á morgun; JOAKIM’s dagur og Stefán Hjaltested örugglega til í að skamma mig fyrir léleg köst.

Veiðitölur ársins

Bleikjur í ferð Bleikjur alls Urriðar í ferð Urriðar alls Fj.ferða
 / 0 / 0 / 0 0 / 0 0 / 2

2 responses to “Elliðavatn 9. maí”

  1. Þórunn Björk Avatar

    Já, mikið var gott að komast út og athuga með köstin og enn betra að komast aftur heim….djös skíta kuldi! Þar sem veltiköstin eru einmitt á ,,æfingalista“ sumarsins er vel við hæfi að sjá hvernig Úlfynjan gerir þetta og æfa það.

    Líkar við

  2.  Avatar
    Nafnlaust

    Varla hægt að finna að hjá manni sem búinn er að stunda uppköst í hálfan mánuð.

    Líkar við

Senda ábendingu

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *