Það var ekki beinlínis vor í lofti þegar ég lenti við Meðalfellsvatnið rétt um kl.11 í morgun. Lítilsháttar vindur og hitastigið rétt um 4°C og það brakaði og brast í íshrönglinu sem safnast hafði saman undan vindi við vestubakka vatnsins. Sú gula kúrði á bak við skýin og náði ekki alveg í gegn.

Þegar ég kom að vatninu var einn veiðimaður með spún við norðurströndina, annars ekkert um að vera. Þar sem vindur stóð af suð-austri, kom ég mér fyrir rétt austan við ós Sandár og reyndi að liðka ryðgaða kastvöðva. Eins og gefur að skilja var vatnið frekar kalt og ekkert líf að sjá utan álfta og nokkurra anda á ísskörinni við austurbakkan. Ég er nú samt ekki frá því að ég hafi fengið eitt nart, lengst, lengst út í dýpinu, en fiskur kom ekki á land. Hún er sem sagt formlega hafin hjá mér, baráttan við núllið. Það gengur bara betur næst.

Veiðitölur ársins
| Bleikjur í ferð | Bleikjur alls | Urriðar í ferð | Urriðar alls | Fj.ferða |
|---|---|---|---|---|
| 0 / 0 | 0 / 0 | 0 / 0 | 0 / 0 | 0 / 1 |









Senda ábendingu