Flýtileiðir

Þingvallavatn, 1. maí

Okkur tókst frábærlega að viðhalda stofni Þingvallaurriðans í dag. Við hjónin skruppum í blíðunni á Þingvöll og urðum ekki vör við einn einasta fisk en því meira af mýpúpuhylkjum á vatninu. Greinilegt að náttúran er að vakna til lífsins og fuglar á þönum með greinar og strá í gogginum svo vart var flugu út komandi fyrir flugumferð.

Perla okkar Íslendinga skartaði svo sannanlega sínu fegursta og gladdi eflaust þá veiðimenn sem lögðu leið sína að vatninu. Ekki er alveg eins víst að þeir sem lögðu leið sína í opnun Úlfljótsvatns hafi verið jafn hamingjusamir með veðrið. Við fórum sem sagt lengri leiðina heim og keyrðum austur fyrir Úlfljótsvatn inn í frekar kuldaleg gjólu þar sem nokkrir veiðimenn reyndu fyrir sér við vatnið. Hvort eitthvað hafi hlaupið á snærið hjá þeim þennan fyrsta dag í veiði þori ég ekki að fullyrða, en litlum fréttum fór af veiði laust upp úr hádeginu þegar við hittum á einn sem hafði reynt fyrir sér í morgun.

Það verður nú samt að viðurkennast að eftirspurn eftir fiski er farin að aukast örlítið. Sex veiðiferðir og fiskur aðeins fengist í tveimur þeirra. Sjáum til hvað morgundagurinn ber í skauti sér, kannski maður sleppi bara ræktinni í fyrramálið og skjótist í veiði.

Þingvallavatn - 1.maí
Þingvallavatn – 1.maí

Veiðitölur ársins

Bleikjur í ferð Bleikjur alls Urriðar í ferð Urriðar alls Fj.ferða
 / 0 0 0 0 / 2 4 / 6

One response to “Þingvallavatn, 1. maí”

  1. Rusl og drasl | Græni froskurinn Avatar

    […] heldur til að skjóta út flugu og veiða, eða reyna allavega. Um veiðiferðina má lesa betur hér, en það sem varð til þess að þessi pistill varð til var svona víðavangs-rusl.Það sést […]

    Líkar við

Senda ábendingu

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *