Nú er undirbúningur Kastað til bata 2014 kominn á fullt. Þetta árið verður farið í Reykjadalsá í Suður-Þingeyjarsýslu dagana 14. til 16.júní.
Áin og umhverfi hennar er einstaklega fallegt og vinsælt hjá silungs- og laxveiðimönnum. Nánar má lesa um hana og skoða myndir frá staðnum á vef veida.is hér.
Eins og verið hefur er ferðin þátttakendum að öllu kostnaðarlaus og nú er umsóknarferlið hafið og stendur til 10.maí 2014. Umsóknum skal skila með tölvupósti á póstfangið: kastadtilbata@krabb.is þar sem fram koma eftirfarandi upplýsingar:
- Nafn
- Heimilisfang
- Kennitala
- Heimasími
- Farsími
- Hvenær brjóstakrabbameinsmeðferð lauk (mánuður og ár)
- Hvaða tegund brjóstakrabbameinsmeðferðar (aðgerð, lyf, geislar)
Jafnframt eru umsækjendur beðnir um stutta greinargerð þar sem þeir tiltaka hvers vegna þeir vilja taka þátt í verkefninu og meta líkamlegt ástand sitt til að taka þátt í því. Nánari upplýsingar veitir Auður Jóhannsdóttir hjúkrunarfræðingur hjá Ráðgjafarþjónustu Krabbameinsfélagsins í síma 540 1900. Einnig má senda fyrirspurn á netfangið audure@krabb.is
Allar upplýsingar má að sjálfsögðu finna á vef Krabbameinsfélagsins og svo er um að gera að fylgjast með starfi hópsins á Facebook síðu hans.









Senda ábendingu