Flýtileiðir

Líftími

Léleg kveðja

Meðalaldur urriða er rétt um 5 ár. Það tekur bjórdós u.þ.b. 10 ár að brotna niður í náttúrunni, glerflaskan lifir margfalt lengur, plastið eitthvað álíka. Ef veiðimaður hefur burði til að bera með sér fulla flösku/dós á veiðistað, ætti hann einnig að hafa burði til taka tómar umbúðirnar með sér heim aftur. Það er öfugsnúin upplifun að sjá veiðimann ástunda veiða/sleppa og skömmu síðar henda frá sér í fögnuði bjórdós eða flösku, það er léleg kveðja og þökk sem fylgir fiskinum út ævina og afkomendum hans.

Ummæli

06.05.2013 – Siggi Kr.Góð vísa sem verður aldrei of oft kveðin – tökum allt rusl með okkur heim af veiðislóð!

Eitt svar við “Líftími”

  1. Siggi Kr Avatar

    Góð vísa sem verður aldrei of oft kveðin – tökum allt rusl með okkur heim af veiðislóð!

    Líkar við

Senda ábendingu

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *