
Úr fréttatilkynningu Veiðikortsins: Veiðikortið ehf. og Veiðifélag Elliðavatns hafa skrifað undir samning til þriggja ára um aðild Elliðavatns að Veiðikortinu og tekur samningurinn gildi strax á komandi veiðitímabili. Veiði hefst í vatninu Sumardaginn fyrsta 2013. Svæðið sem um ræðir er Elliðavatn, Helluvatn, Hólmsá auk Nátthagavatns.
Meira um þessi stórskemmtilegu tíðindi á veidikortid.is









Senda ábendingu