Skítt með haustlitina, við fórum sko að veiða í dag. Þegar ekkert annað blasti við heldur en sófinn eða áfram haldandi tiltekt í bílskúrnum var valið ekki erfitt. Vatn sem við höfum lítið heimsótt í sumar varð fyrir valinu og ferðin sveik okkur ekki. Þokkalegasta veður, NNV4 og 7°C, skýjað. Lengi vel var útlit fyrir að frúnni tækist að saxa á forskot mitt í urriðum því fljótlega setti hún í þokkalegan hæng á Peacock og ekki löngu síðar enn einn á Black Ghost. Staðan var því orðin 30 / 33 og ég varð ekki var. Ég rölti, veiðandi til baka að bílnum en fékk ekki eitt einasta nart. Trúlega sá frúin aumur á mér og stakk upp á að við færum í gagnstæða átt og reyndum fyrir okkur þar. Og viti menn, ég setti í mjög fína hryggnu í öðru kasti og bætti svo annarri við skömmu síðar.
Hængarnir voru langt því frá farnir að dökkna, önnur hryggnan var ókynþroska en hin komin nokkuð nærri hrygningu, vel full hrognum sem nú eru í salti í ísskápnum. Flök í frysti og önnur komin í grafning.

Veiðitölur ársins
| Bleikjur | Sleppt | Urriðar | Sleppt | Fj.ferða | Núllað |
|---|---|---|---|---|---|
| 73 / 35 | 14 | 30 / 35 | 4 | 37 | 15 |









Senda ábendingu