Ég hef með tíð og tíma tekið nokkru ástfóstri við ákveðnar flugur sem verða ósjálfrátt oftar fyrir valinu en aðrar þegar ég byrja veiðina; Pheasant Tail (original og kúluhaus) og svo svartar mjónur. En þegar þessir vinir mínir bregðast þá grípur ákveðin valkvíði um sig, hvað á ég að velja næst? Þegar uppáhaldið bregst þarf ekki alltaf að sveiflast öfganna á milli. Ágætt getur verið að hafa eftirfarandi forgangsröðun í huga við flugnavalið:
- Breyttu um stærð. Ekki endilega alltaf minni, stærri er líka kostur.
- Veldu aðeins aðra lögun, stutt skott í stað langs, bústinn búkur í stað granns, stuttur búkur í stað langs.
- Örlitlar sveiflur í lit geta gert kraftaverk. Haltu þig við sama grunnlitinn, en með aðeins öðrum frambúk, baklit eða haus.
- Framsetning flugunnar skipti alltaf máli. Hvað svo sem þykir rétt hverju sinni; hægt og rólega í köldu vatni, sprækt og ögrandi í björtu veðri, þá kemur alltaf til greina að bregða út af vananum og frá öllum reglum annars lagið.









Senda ábendingu