Nokkuð erfiðar aðstæður; rok, rigning og kalt með köflum. Ágætis kastæfingar undir klettum Indjánans rétt fyrir kvöldmat og svo smá æfing á móti vindi undir Hverahlíðinni. Við erum sammála um það hjónin að framsetningar okkar með nýju línunum eru alveg að detta inn, skemmtilegar línur á móti vindi. Ekki eitt einasta orð um fisk. Það er nú farið að þyngjast í mér hljóðið núna.
Veiðitölur ársins
| Bleikjur | Sleppt | Urriðar | Sleppt | Fj.ferða | Núllað |
|---|---|---|---|---|---|
| – | – | 2 | 1 | 8 | 6 |
Ummæli
Urriði 29.04.2012: Það er búið að opna Reynisvatn ![]()
Kristján 29.04.2012: Úps, hér brestur mig bara orð. Eigum við bara ekki að segja að ég hef aldrei komist upp á lagið með að veiða eldisfisk ![]()









Senda ábendingu