Flýtileiðir

Síðasti dagur í bið

Smelltu fyrir stærri mynd

Fyrir mörgum er dagurinn í dag erfiður, sérstaklega þeim sem bíða spenntir eftir að komast í eitthvert af vötnunum sem opna á morgun.  Það er eins og mér finnist þau koma nokkuð fyrr undan ís þetta vorið heldur en síðustu ár, þrátt fyrir þungan vetur. Meðf. mynd er tekin af Meðalfellsvatni kl.13:30 í dag, 31.mars. Engin ís né nokkurt hröngl á vatninu og útlitið fyrir morgundaginn bara nokkuð gott.

Veðurspá gerð kl.18:32Vestlæg átt, 3-10 m/s. Skýjað og þurrt að kalla SA-til, þokuloft á köflum SV-til en rigning N- og NA-til. Hiti 1 til 10 stig, hlýjast SA-til. Snýst í hæga norðaustanátt á morgun með dálítilli ofankomu norðan og austantil og yfirleitt vægu frosti, en úrkomulítið vestanlands og hiti 2 til 5 stig.

Ummæli

Árni Jónsson, Eyrarbakka.Langir, kaldir og dimmir 5 mánuðir og 11 dagar. Það verður bleytt í línum á morgun!

2 responses to “Síðasti dagur í bið”

  1. Árni Jónsson, Eyrarbakka. Avatar
    Árni Jónsson, Eyrarbakka.

    Langir, kaldir og dimmir 5 mánuðir og 11 dagar. Það verður bleytt í línum á morgun!

    Líkar við

  2. Kristján Avatar

    Já, ef veðurspáin gengur eftir þá verður biðröð í vötnin á morgun 🙂

    Líkar við

Senda ábendingu

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *