Jólaseríur

Nú fer í hönd uppáhalds tími ársins hjá mér, ‘NOT‘. Ég þarf af príla upp á loft og ná í jólaseríurnar frá því í fyrra, greiða úr flækjunum og prófa hverjar þeirra lifðu geymsluna af. Eins og kemur fyrir, þá eru örugglega einhverjar þeirra svo illa farnar að þeim er ekki hugað líf, nema þá framhaldslíf. Ekki henda öllum leiðslunum úr ónýtu jólaseríunum því inni í þeim er fínasti kopar- eða álvír fyrir fluguhnýtingar. Auðvitað strippar maður ekki 30m ljólaseríu og vefur upp á kefli, einfaldari leið er að taka u.þ.b. 20-25sm bút af leiðslunni, afhýða hana alla nema c.a. 2sm bút, taka 4-5 svona vöndla og líma þá saman á kápustubbunum, t.d. með silicone kítti (örlítið niður fyrir kápuna) þannig að vírarni losni ekki hver frá öðrum. Með þessu móti er auðvelt að ná sér í einn og einn vír án þess að allt rakni í sundur og jólaserían öðlast nýtt líf í flottum flugum í vetur.

2 svör við “Jólaseríur”

  1. Hilmar Avatar
    Hilmar

    Snilldar nýting á seríunum, Mar á líklega margra ára birgðir af vír eftir að hafa farið í gegnum seríurnar þetta árið :o)

    mbk

    Hilmar

    Líkar við

  2. Kristján Avatar

    Segðu, það er varla nokkurt pláss eftir á hnýtingarborðinu fyrir koparvöndlum 🙂
    /Kristján

    Líkar við

Senda ábendingu

Skráðu umbeðnar upplýsingar að neðan eða smelltu á smámynd til að skrá þig inn:

WordPress.com Logo

You are commenting using your WordPress.com account. Log Out /  Breyta )

Twitter picture

You are commenting using your Twitter account. Log Out /  Breyta )

Facebook photo

You are commenting using your Facebook account. Log Out /  Breyta )

Tengist við %s

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.

Create a website or blog at WordPress.com