Flýtileiðir

Hvar er fiskurinn?

Kaldhæðnislega svarið er; Í vatninu. Fiskur finnst að hámarki í um 10% vatnsins. Þessi einfalda staðreynd segir okkur að það sé frekar ólíklegt að við veiðum eitthvað ef við einfaldlega mætum á svæðið, hugsana- og athugunarlaust. Það er svo einfalt að við veiðum ekki fisk þar sem enginn fiskur finnst. Við verðum að snúa á líkurnar og nýta okkur allar vísbendingar um þá staði sem fiskur getur haldið sig á:

  • Í skjóli við stein
  • Í lygnunni hlé megin við nes og tanga
  • Í skugganum
  • Í jaðri grynninga
  • Í súrefnisríku vatni úr lækjum og uppsprettum
  • Í skjóli við bakkann

Ef við erum alveg ‘lost’ þá eru þetta nokkrir staðir þar sem byrja má á að leita fyrir sér þegar komið er að vatni.

One response to “Hvar er fiskurinn?”

  1. Kafað í hegðun silungsins IX « FLUGUR OG SKRÖKSÖGUR Avatar

    […] vísa verður aldrei of oft kveðin. Nokkrir punktar frá mér sem hafa bent á þetta eru t.d. Hvar er fiskurinn? auk fjölda greina í flokkinum Veiðitækni sem hægt er að skoða í heild sinni með því að […]

    Líkar við

Senda ábendingu

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *