FOS
  • Febrúarflugur
  • Færslur
  • Flugur
  • Grúsk
    • FiskurinnNokkrir punktar um hegðun fisksins sem við erum að eltast við.
    • GreinaskrifGreinar og fréttir sem komið hafa fram á hinum og þessum miðlum á liðnum árum.
    • GræjurNokkrar greinar um veiðistangir, hönnun þeirra og eiginleika.
    • HnútarNokkrir góðir hnútar
    • HnýtingarÝmislegt sem tengist veiðiflugum, hnýtingu þeirra og hönnun.
    • Hnýtingarefni
    • KannanirÝmsar kannanir sem FOS.IS hefur gert meðal lesenda sinna, niðurstöður þeirra og hugleiðingar út frá þeim.
    • KasttækniAlltaf gott að rifja upp kasttæknina.
    • Lífríkið
    • Línur og taumarÝmislegt gagnlegt sem lýtur að flugulínum og taumum.
    • MaturNokkrar uppskriftir og umfjöllun um þann mat sem má gera sér úr aflanum.
    • Veiðiferðir
    • Veiðitækni
    • ÞankarÝmsir þankar og hugleiðingar
    • ÆtiðAllt sem fiskurinn leggur sér til munns.
  • Vötnin
  • Myndir
  • Töflur
    • AFTM
    • Alfræði
    • Byrjendur
    • Festingar
    • Fiskurinn
    • Flóðatafla
    • Hlutföll
    • Krókar
    • Kúlur & keilur
    • Lög og reglur
    • Taumar og flugur
    • Þráður
  • Tenglar

  • Þingvallavatn, 28.ág.

    28. ágúst 2010
    Veiði

    Upp

    Forsíða

    Stangveiði snýst um að njóta náttúrunnar og góðs félagsskapar. Það var einmitt það sem við hjónin gerðum í dag, skruppum á Þingvöll og æfðum nokkur fluguköst í blíðunni undir Arnarfelli, með heitt á brúsa í frábæru veðri. Og við vorum ekki þau einu sem fórum fisklaus heim, veiðiverðir Þjóðgarðsins tjáðu okkur að það hefði ekki komið branda upp úr vatninu í dag. Sjálf heyrðum við í þremur sem ekki urðu einu sinni varir, sáu þó fisk en hann tók ekkert.

    Höfundur:

    Kristján Friðriksson
  • Langavatn 21.ág.

    22. ágúst 2010
    Veiði

    Upp

    Forsíða

    Það var ein lítil 1/2 punda bleikja sem forðaði því að hér yrði öngull í rassi enn eitt skiptið. Af okkur fjórum sem börðum Langavatn frá morgni til kvölds í strekkings vindi og úrkomu á köflum, var ég sá eini sem einhvern fisk fékk. Prófuðum undir Réttarmúlanum alveg frá Beilárvöllum og út fyrir víkina undir sæluhúsinu en ekkert gekk. Ekki litið við maðk, spún né flugum. Upp úr hádegi rölti ég Beilárvellina inn að Klifi og þar varð ég loksins var við fisk beint á móti vindi. Reyndum síðan aftur rétt fyrir ljósaskiptin undir Klifi, vel á móti vindi ef ske kynni að bleikjan væri í æti í öldurótinu, en ekkert gekk. Kannski er fiskurinn farinn inn að Langavatnsárós í hryggningu? Finnst það samt full snemmt svona upp úr miðjum ágúst.

    Höfundur:

    Kristján Friðriksson
  • Úlfljótsvatn 14.ág.

    14. ágúst 2010
    Veiði

    Upp

    Forsíða

    Enn og aftur er það öngull í rassi. Fikruðum okkur niður slóðann að Borgarvík og eyddum 4 klst. í mjög fallegu veðri, súld / þoka en afskaplega stillt og hlýtt. Í það minnsta inni í víkinni. Í sem skemmstu máli urðum við ekki vör, utan þess að konan sá einn ‘lítinn’ eltast aðeins við fluguna sem hún var að baða í það skiptið. Nokkuð var um fólk sem naut veðursins á þessum slóðum, en ég veit ekkert um hvernig þeim gekk.  Það gengur bara betur næst.

    Höfundur:

    Kristján Friðriksson
  • Svínadalurinn 6.-7.ág.

    8. ágúst 2010
    Veiði

    Upp

    Forsíða

    Jamm, hér er öngull í rassi.  Bæði hjá mér og frúnni.  Veðrið var ekkert sérstakt á föstudaginn, rok og rigning og við mættum frekar seint á tjaldstæðið á Þórisstöðum.  Prófuðum Glammastaðavatn (Þórisstaðavatn) aðeins um kvöldið en ekkert gekk.

    Renndum inn að Eyrarvatni á laugardaginn í þokkalegasta veðri og háðum hetjulega baráttu við mjög vaxandi gróður í vatninu. Í stuttu máli; gróðurinn hafði betur. Annað sem vakti athygli mína var fjölskrúðugt líf vaðfugla við vatnið sbr. ágætis grein Engilberts Jensen um Vífilstaðarvatn sem finna má hér. Jú, jú, ég á líka vöðlur og nota þær mikið, en ég get svo svarið það að ég göslast ekki tugi metra út í vatnið með látum og gusugangi, til þess eins að geta komið færinu fyrir stóru fiskana úti. Ég hafði það á tilfinningunni að á staðinn væru mættir einn og einn kúreki í vöðlum, vopnaðir ógnvekjandi beituhlunkum til þess að ná einhverjum af þessum löxum sem sluppu framhjá veiðimönnunum í Laxá og komust alla leið upp í vötnin í Svínadalnum.  Sagan segir að einhver hafi náð 14 löxum í Eyrarvatni nú fyrir skemmstu.  Kannski var það bara einn af þeim sem dóluðu fram og til baka á bátunum sínum með spúnadræsuna í eftirdragi?

    Höfundur:

    Kristján Friðriksson
  • Hlíðarvatn, Hnappadal 31.júl.-2.ág.

    2. ágúst 2010
    Veiði

    Upp

    Forsíða

    Ekki klikkar Hlíðarvatnið, þótt það hafi ekki verið neitt brjálæði.  Tókum heim með okkur ein 14 stk. á bilinu 1 1/2 – 2 pund.  Vatnið hefur minnkað enn meira frá því við vorum þar um miðjan júlí og mér sýnst að vanti c.a. 3 m í vatnið.  Ókostur: gróðurinn er að verða verulega til trafala.  Kostur: ekki þarf að leita lengi að dýpinu þar sem ‘þeir stóru’ leynast.  Vorum eins og venjulega í landi Heggsstaða og tókum alla fiskana innst í vatninu.  Prófuðum allt svæðið út að Álftatanga en gróðurinn var aðeins of mikill. Veiðarfæri: 6 stk. á Black Ghost, 3 stk. á Dentist, 4 stk. á svartan og gylltan spinner og 1 stk. á maðk.  Frúin stimplaði sig heldur betur inn í fluguveiðinni og tók 6 stk. á Black Ghost eins og ekkert væri á meðan ég þráaðist við með Dentist og einhverjar aðrar sem ekkert gáfu.

    Á meðan við drápum eins og við gátum, var yngri sonurinn á fullu að bjarga urriðaseyðum úr þornandi pollum og koma þeim í öruggt skjól í lækjarsprænunni.  Kannski átti strákurinn bara metið í ferðinni, því hann bjargaði á milli 20 – 30 stk.  Vonandi fer vatnsbúskapurinn á svæðinu eitthvað að rétta úr sér, það var í það minnsta rigning þegar við fórum heim.

    Höfundur:

    Kristján Friðriksson
  • Hópið 23.- 25. júlí

    26. júlí 2010
    Veiði

    Upp

    Forsíða

    Jómfrúarferð í Hópið í Húnavatnssýslu. Eftir nokkra leit og svaðilfarir komum við okkur fyrir rétt austan ósa Gljúfurár. Sagan segir að í vatninu sé staðbundinn stofn bleikju og urriða, ásamt sjógöngufiski og ‘laxa von’. Laxinn var mættur og beið óþolinmóður eftir að ganga upp í Gljúfurá sem var einstaklega vatnslítil.  Annar fiskur var ekki á staðnum, utan hornsíla sem týnd voru í flæðarmálinu.Laxinn var mjög tregur og leit lengi vel ekki við neinu, hvorki spún, maðki né flugu.  En á laugardaginn missti stóri bróðir einn sem stal af honum öngli og sökku með miklum látum eftir að hafa tekið hressilega.  Sjálfur missti ég síðan einn af spún þannig að fisklaus fórum við úr Hópinu eftir annars mjög góða helgi í sól og blíðu. Af hverju annar fiskur var ekki sjáanlegur, veit ég ekki.  Eina sem mér dettur í hug er að laxinn hafi hrakið annan fisk  af svæðinu með ofsafengnum stökkum og látum fyrir framan ós Gljúfurár og meðfram bakkanum til beggja átta.

    Höfundur:

    Kristján Friðriksson
«Fyrri síða
1 … 52 53 54 55 56
Næsta síða»

FOS

Allur réttur áskilinn – © 2025 – Kristján Friðriksson

  • Facebook
  • Vimeo
  • Issuu
  • YouTube
  • Instagram
  • Senda skilaboð
  • Áskrift í tölvupósti
 

    • Gerast áskrifandi Subscribed
      • FOS
      • Join 176 other subscribers
      • Already have a WordPress.com account? Log in now.
      • FOS
      • Gerast áskrifandi Subscribed
      • Skrá mig
      • Innskráning
      • Report this content
      • Skoða vef í lesara
      • Manage subscriptions
      • Collapse this bar