Flýtileiðir

Hentistefna

Silungur er haldin hentistefnu. Eins og hér hefur verið tuggið ítrekað, þá hugsar fiskurinn í kalóríum og prótein einingum fyrst og fremst. Hann vill mikið af hvoru tveggja í skiptum fyrir sem minnst, jákvæð orkuskipti. Ef hann kæmist upp með að liggja fyrir bráð sinni í stað þess að leita hennar eða elta, þá mundi hann gera það 24 klst. á sólarhring. En því er alls ekki þannig farið, stundum verður hann að fórna nokkrum kalóríum til að bæta á sig. En hvar kemst hann næst því að fá fæðuna fyrirhafnarlaust upp í sig?

Í upphafi skyldi endinn skoða. Stöðuvötn, manngerð eða náttúruleg, enda flest þar sem úr þeim rennur og þar er einmitt góður staður fyrir jákvæð orkuskipti. Vötnin sjálf ala og geyma fæðu sem fiskinum er þóknanleg og reglulega eða tilfallandi rekur þessa fæðu að útfalli þeirra. Þar er því tilvalin staður til fyrirhafnalítillar fæðuöflunar, liggja í útfallinu, snúa hausum upp í rennslið og grípa það sem berst. Mín persónulega reynsla er sú að fiskurinn virðist sækja í að liggja í útrennslinu sjálfu, helst sem næst upptökunum þannig að hann sé fyrstur í röðinni að grípa fæðuna þegar hún berst. Ekki skemmir fyrir ef hylur er í afrennslinu þar sem fiskurinn nýtur hvoru tveggja, fæðu og öryggis. Því fjær vatninu sem dregur, því færri fiska hef ég yfirleitt séð og smærri. Hvort þetta sé tilviljun eða einhver regla, þori ég ekki að segja til um, en mig grunar að stærri, feitari og frekari fiskarnir tryggja sér besta staðinn.

Hin staðurinn sem fiskurinn elskar er þar sem rennur til vatnsins. Oftar en ekki renna fleiri lækir eða ár til vatna heldur en frá þeim og þeir bera ekki aðeins með sér fæðu heldur einnig ferskt, jafnvel kaldara og súrefnisríkara vatn sem fiskurinn sækir gjarnan í. Mín reynsla er að þar liggur fiskur oftar en ekki í vatninu sjálfu, helst þar sem öryggi er í dýpra vatni eins og við neðra aðrennslið á myndinni, en vitaskuld sækir hann líka í aðrennslið fyrir ofan því á grunninu fyrir framan það er oft ansi auðugt skordýralíf sem fyrirhafnarlítið er að ná.

Hver þessara staða er veiðilegastur er afar mismunandi eftir vötnum, en miðað við myndina hér að ofan, þá mundi ég trúlega leggja leið mína til að byrja með að neðra aðrennslinu.

Senda ábendingu

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *