Flýtileiðir

Tunglstaða

FOS barst nýlega fyrirspurn hvers vegna tunglstaða væri höfð með í flóðatöflunni á FOS. Við þessari spurningu er stutta svarið: Tunglið hefur töluverð áhrif á möguleika okkar til að veiða fisk. Aðeins ítarlegra svarið er eitthvað í átt við eftirfarandi.

Þegar tunglið, sólin og jörðin raða sér í beina línu, þá er stórstreymt á jörðu. Það gerist þegar tungl er nýtt  og þegar það er fullt . Aðdráttarafl tungls og sólar er sterkast á þessum tíma og því rís yfirborð sjávar sjáanlega. Þessarar breytingar verður einnig vart í ferskvatni þó við sjáum þær ekki eins áberandi eins og í sjávarföllum. Fiskurinn aftur á móti finnur sannanlega fyrir þeim, leitar upp í vatnsbolinn og verður virkari í fæðuöflun. Það er þessi aukna virkni í fæðuöflun sem veiðimenn sækjast eftir og hún nær hámarki í þrjá til fjóra daga sem falla saman við fullt tungl og nýtt tungl.

Að sama skapi er aðdráttarafl sólar og tungl minnst þegar tungl er hálft í kringum fyrra kvartil og síðara kvartil Á þeim tíma er fiskurinn ekki eins léttur á sér og því daufari í fæðuöflun sem minnkar líkur okkar á veiði.

Einu atriði sleppti ég hér og það er endurkast ljóss frá fullu tungli. Það er trú manna að fiskur leiti upp í birtuna frá fullu tungli, en það hefur væntanlega lítil áhrif á björtum sumrum þegar við erum helst í veiði, þá ræður aðdráttaraflið eitt og sér trúlega meiru.

Senda ábendingu

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *