Flýtileiðir

Sorrý, ég sá hana bara ekki

Veiðisagnahöfundar hafa tilhneigingu til að einblína á velgengni í veiði og vel heppnaðar flugur, það þekkjum við öll því endalausar harmsögur um áhugaleysi fiska eða mislukkað flugnaval eru ekki meðal vinsælasta lesefnis veiðimanna, það þekki ég af eigin raun og hef tölulegar upplýsingar því til staðfestingar. En það breytir því ekki að það geta legið ýmsar ástæður að baki þess að við lendum í því að baða flugurnar, viðra græjurnar, berja vatnið eða hvað það heitir sem við köllum það þegar fiskurinn sýnir því engan áhuga sem við bjóðum honum.

Eitt af því sem er stundum að hrjá mig í veiði er skilningsleysi á aðstæðum og endalaus framsetning flugu sem lendir í þessum 60% tilfella þar sem fiskurinn einfaldlega sér hana ekki. Ég verð að viðurkenna að ég man ekki hvar ég las að í 60% tilfella þegar við verðum ekki vör við áhuga, þá er það einfaldlega vegna þess að fiskurinn sér ekki fluguna, sorrý. Í mínu tilfelli og væntanlega einhverra fleiri, felst áskorunin í að koma flugunni inn í sjónsvið fisksins.

Bleikja og urriði sjá tiltölulega vel upp fyrir sig sem er einmitt ástæða fyrir því hve mikilvægt það er að útlínur (skuggamynd) flugunnar sé eitthvað sem kveikir matarást fisksins, árásargirnd hans. Fluguna ber jú við yfirborð vatnsins, ljósari bakgrunn þess glugga sem fiskurinn sér upp fyrir sig. Það er hægt að áætla stærð þessa glugga með því að draga ca. 10% frá áætluðu dýpi niður á fiskinn, sjá myndina hér að ofan. Við þetta verður þó að hafa í huga að glugginn er ekki hringlaga keila, hún er frekar dropalaga séð að ofan, breiðust í þá stefnu sem fiskurinn snýr sem helgast af því að fiskurinn sér ekki eins vel aftur fyrir sig eins og fram.

Þetta er allt ákveðin líkindareikningur, rétt eins og veðurspáin, það er bara spurningin hvort maður áætlar dýpið rétt og veit í hvaða átt fiskurinn snýr sér. Það síðastnefnda er yfirleitt auðvelt í rennandi vatni, hann snýr sér oftast upp í strauminn þannig að hann taki á móti fæðunni sem straumurinn ber með sér. Það er aðeins (mikið) erfiðara að segja til um hvernig fiskurinn snýr sér í kyrrstæðu vatni, ekki nema vindurinn blási hressilega, þá má ætla að hann snúi sé á móti því sem aldan ber með sér.

Senda ábendingu

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *