Ekki alls fyrir löngu var ég að lesa yfir texta um silungsveiði á Íslandi og við lesturinn varð mér nokkrum sinnum fótaskortur á tungunni og hrasaði um ýmsar merkingar orða. Það er svo sem ekkert einsdæmi þegar kemur að prófarkalestri texta sem tveir eða fleiri hafa skrifað að hugtök og orð séu notuð með mismunandi hætti, en í þessu tilfelli varð ég áttavilltari en góðu hófi gegndi og datt því í hug það sem presturinn sagði í skírninni um árið þegar foreldrarnir fóru að kýta um nafn barnsins, „Jesús minn, hvað á barnið eiginlega að heita?“ Hvort Jesús hafi svarað, veit ég ekki, en ég þurfti að grafa nokkuð djúpt í umræddan texta til að finna rétt samhengi og merkingu þeirra orða og hugtaka sem notuð voru í honum.
Mér datt í hug að fleirum væri líkt á komið og mér og því tók ég hér saman þau orð sem mér er tamt að nota og tengjast yfirheitinu silungur og tegundaheitunum urrði og bleikja. Uppruna þessarar samantektar má finna í Íslenskri nútímaorðabók og þau eru studd skyldleikaorðum og tegundarheitum sem finnast m.a. í Íðorðabanka Árnastofnunar, bókunum Orðakver – Fiskar, hvalir, selir, hryggleysingjar og Íslenskir fiskar eftir Gunnar Jónsson, auk annarra uppflettirita sem leyndust í bókahillunni minni. Öll þessi inn- og erlendu heiti er að finna meðal 600 leitarorða sem finna má í Alfræðiorðasafninu hér á síðunni.
Silungur
yfirheiti yfir urriða og bleikju, fiska sem lifa einkum í ám og vötnum
lonta smásilungur | kræða smásilungur | branda þekkt í Mývatnssveit | gála viðurnefni hrygnu, oftast um bleikju | blásíli og blásilungur haft yfir seiði silunga en hafa þó einnig verið notuð um hvítholda silung, mögulega albínóa
vatnasilungur: yfirheiti silunga sem ala allan aldur sinn í ósöltu vatni, haft um bæði urriða og bleikju
lækjarsilungur: yfirheiti silunga sem ala allan aldur sinn í straumvatni, haft um bæði urriða og bleikju
göngusilungur: yfirheiti silunga sem ganga úr sjó í ósalt vatn, haft um bæði sjóbirting og sjóbleikju
Urriði
fisktegund (Salmo trutta) af ættkvísl laxa (Salmo) af ætt laxfiska (Salmonidae)
en. brown trout | da. ørred | fr. truite brune / truite d’Europe | no. aure / ørret | de. Forelle | es. trucha | pt. truta
vatnaurriði (Salmo trutta lacustris) – staðbundinn urriði sem lifir allan sinn aldur og hrygnir í ferskvatni (non-anadromous trutta)
en. lake trout | da. Søørred | fi. Järvitaimen | fr. truite argentée / truite de lac | pl. troc jeziorowa | sv. insjööring | de. Seeforelle
lækjarurriði (Salmo trutta morpha fario) – staðbundinn urriði sem lifir allan sinn aldur og hrygnir í straumvatni (non-anadromous trutta)
en. river trour | no. bekkaure / bekkørret | sv. bäcköring | de. Bachforelle
sjóbirtingur | birtingur | sjóurriði (Salmo trutta morpha trutta) – urriði sem lifi og hrygnir í fersku vatni en gengur að jafnaði til sjávar hluta ársins til að afla sér fæðu og vaxa, ferskvatnssækin (anadromous trutta)
en. sea trout | fr. truite de mer / truite de lac | ga. breac geal | fo. sjósíl | no. sjøaure / sjøørret | dk. havørred / laksørred | pt. truta-do-mar / truta-marisca | es. trucha marina | de. Meerforelle / Lachsforelle
Bleikja
fisktegund (Salvelinus alpinus) af bleikjuættkvísl (Salvelinus) af ætt laxfiska (Salmonidae)
fjallableikja | heimskautableikja | reyður | átubleikja | riðgála eða riðbleikja þegar hún er í riðbúningi
en. charr / char / arctic charr | fr. omble artique / omble-chevalier | fo. bleikja | dk. fjeldørred / røj | no. bleike / røe / rør / røye | pt. salvelino-ártico | es. trucha alpina | de. Saibling
vatnableikja | lindarbleikja – yfirheiti þeirra bleikju sem lifir allan sinn aldur og hrygnir í ferskvatni (non-anadormous charr)
de. Seesaibling
sílableikja | ránbleikja | djúpbleikja – staðbundið afbrigði bleikju
kuðungableikja | átubleikja | bobbableikja | netbleikja – staðbundið afbrigði bleikju, deilir viðurnefninu botnbleikja með dvergbleikju
murta (Salvelinus alpinus murta) | haustmurta | depla | námurta | krús | flóabranda þekkt í Mývatnssveit | blóðmurta sú murta sem lokið hefur hrygningu | Ölfusingur þekkt við Þingvallavatn – staðbundið afbrigði bleikju
dvergbleikja (Salvelinus alpinus thingvallensis) | gjá(ar)murta | hellableikja | gjáarlonta |svartbleikja /svartmurta (Salmo alpinus subsp. niger) – staðbundið afbrigði af bleikju, deilir viðurnefninu botnbleikja með kuðungableikju.
sjóbleikja | ljósnál | sjóreyður | rauðbirtingur | mararslápur – lifi og hrygnir í fersku vatni en gengur til sjávar að jafnaði hluta ársins til að afla sér fæðu og vaxa (anadromous charr)
de. Wandersaibling | en. sea run char
Augljósum villum, helst úr íðorðasöfnum, er vísvitandi sleppt, t.d. þar sem þýðingar steypa saman yfir- og tegundaheitum eins og enginn sé morgundagurinn. Eflaust vantar einhver heiti inn í þessa samantekt mína eða þá einhver hefur vanist annarri orðanotkun eða merkingu þeirra orða sem ég set hér fram. Ef svo er, þá þætti mér vænt um að fá ábendingar þar um í skilaboðum þannig að ég geti lagað það sem aflaga hefur farið hér á síðunni og í kollinum á mér.









Senda ábendingu