Flýtileiðir

Blóðormur

Það eru örugglega til milljón tegundir af Blóðormi, þ.e.a.s. veiðiflugunni, kannski þeim náttúrulega líka. Í gegnum tíðina hef ég hnýtt nokkrar flugur sem ég hef neytt heitið Blóðormur upp á. Sumar hafa gefið, aðrar ekki, sumar eru flóknar, aðrar ekki, en það sem mér hefur virst standa upp úr af þeim sem ég hef prófað er að það eru þær einföldu sem virka og oftast þær sem fljótlegastar eru í hnýtingu.

Mynd: Mike Wilkinson

Fyrir rúmum áratug síðan var ég eitthvað að grúska eins og svo oft áður og rakst þá þennan blóðorm frá Nýsjálendingnum Mike Wilkinson frá Cromwell á bökkum Dunstanvatns. Mike þessi er glettilega skemmtilegur hnýtari og fer ekki alltaf troðnar slóðir í efnisvali. Í þessa útgáfu af blóðormunum þræðir hann svartan vír í gegnum rautt Veniard Ultra Lace Tubing, setur lykkju á vírinn og festir CDC fjaðrir í lykkjuna. Þetta festir hann síðan á grupper krók með svörtum tvinna og bætir CDC fjöður í haus flugunnar.

Þessa flugu spreytti ég mig á að hnýta en átti því miður ekki rautt Ultra Lace, þannig að ég notaði glært og þræddi rauðan vír í gegn. Eftir töluvert bölv og ragn við að festa CDC fjöður í lykkjuna gafst ég upp og notaði þess í stað UV Ice garn sem ég reytti aðeins í sundur og þynnti. Síðan þá hef ég hnýtt þessa flugu bæði úr glæru Ultra Lace með rauðum vír og rauðu með svörtum vír, en alltaf haldið mig við að nota UV Ice garn og þannig hefur hún fært mér nokkra fiska. Ég mæli alveg með þessari útfærslu flugunnar, hún er fljótleg í hnýtingu og endist alveg ótrúlega vel. Annars biður Mike að heilsa til Íslands, hann er um þessar mundir að þyngja flugurnar sínar þarna hinum megin á hnettinum, hitinn hefur rokið upp í vötnunum og urriðinn hefur sökkt sér niður í kaldara vatn.

Ef þú vilt skoða örlítið breytta útfærslu af flugunni og lýsingu hennar, þá er hana vitaskuld að finna hér á FOS.

Senda ábendingu

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *