Flýtileiðir

Geitabergsvatn 14. sept.

Þar sem við veiðifélagarnir áttum leið í Skorradalinn í gærkvöldi þá þótti okkur ekki úr vegi, sem það reyndar þó var, að fara um Hvalfjörðinn og Svínadal í stað þess að fara fyrir Hafnarfjall. Við vorum nokkuð seint á ferðinni, en síðustu skímu dagsins langaði okkur að njóta við norðanvert Geitabergsvatn og sjá til hvort einhver kulsækinn urriði væri þar á sveimi.

Útsýnið þegar við komum

Ekki var nú hitastigið upp á tvær tölur, reyndar rétt slefaði það í 6°C þegar við drógum á okkur veiðigallann og úr norðri gustaði heldur nöprum vindi. Ekkert líf var sjáanlegt á grynningunum í Innri-Vatnsvík þannig að við fetuðum okkur smá spotta út undir Klifi án þess að verða vör við fisk.

Útsýnið þegar við fórum

Þegar svo tunglið var orðið bjartasti punkturinn á himninum fetuðum við okkur til baka og létum gott heita. Það er nú svo merkilegt að ekki þarf alltaf fisk til að njóta þess að baða flugur og þessi kvöldstund, þótt stutt væri, sannaði það svo um munaði.

Bleikjur í ferð Bleikjur alls Urriðar í ferð Urriðar alls Fj.ferða
/ 0 66 / 84 / 0 48 / 38 18 / 21

One response to “Geitabergsvatn 14. sept.”

  1. Þórunn Björk Avatar

    já, mikið an…… var svo notalegt að komast í heitan pott eftir þennan skítakulda og horfa á norðurljósin, stjörnurnar, stjörnuhrap og geimskipinn. (Þetta m.a.s hljómaði h.u.b. rómantískt þangað til þarna í lokin)

    Líkar við

Senda ábendingu

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *