Stundum kemur upp smá ósætti á milli mín og flugustanganna minna. Við virðumst bara ekki eiga endilega mikla samleið. Það sem stangirnar eru ekki þenkjandi lífverur, þá er víst helst við mig sjálfan að sakast. Dagsformið er misjafnt og ég næ stundum bara hreint ekki að viðhalda góðu sambandi á milli mín og stanganna.
Það sem ég er að vísa hér til er að úlnliðurinn hjá mér verður oftar en ekki of laus, ég næ ekki að læsa honum nægjanlega þannig að bakköstin hjá mér falla niður, aftara stoppið er alls ekki nógu gott og þar með köstin mín öll úr lagi.

Um daginn rakst ég á skemmtileg not fyrir aðgangsbönd sem maður fær stundum þegar maður fer á ráðstefnur og tónleika. Það leyndust í það minnsta nokkur svona í skúffu hér á heimilinu og nú er bara að prófa að taka eitt svona með sér á kastæfingu og sjá hvernig mér tekst að hemja úlnliðinn í bakkastinu. Ef vel gengur, þá hafði ég hugsað mér að kalla þetta vinaband, það sem styrkir samband mitt við flugustangirnar.









Senda ábendingu