Rjómablíða, létt vestan og suð-vestan átt og vatnið upp á sitt fegursta. Vorum mætt í vatnið kl.10 og fljótlega fóru fyrstu fiskarnir að týnast á land. Fastir liðir eins og venjulega; enn hefur lækkað í vatninu. Nú er ég hættur að þora að segja til um hversu mikið vantar í vatnið. Ef við fáum enn einn snjóléttann vetur, þá lítur næsta sumar ekki vel út. Við hjónin voru mjög einbeitt og héldum okkur við fluguna allan daginn, hún með Black Ghost (10 fiskar) en ég með ýmsar aðrar; Vinstri græn, Bleik og blá, Dentist, Blue Charm og Þingeyingur auk Black Ghost (8 fiskar) þannig að samtals tókum við 18 væna fiska fram til kl.21:00 Vatnið hefur því gefið okkur 83 fiska í sumar. Ferðafélagar okkar tóku eitthvað minna á maðk.









Senda ábendingu