Jú, verð að setja svona mynd á söguna því ég fékk einn mjög vænann urriða og missti annan. Stóri bróðir fékk einn líka. Betri helmingurinn kom heim með öngulinn í rassinum.
Get ekki orða bundist yfir umgengni manna við vatnið. Maður er orðinn nokkuð vanur því að flækjast í girnisafgöngum og ýmsu drasli sem menn skilja eftir sig. En, að festa í plastpoka í vatninu með haus og úldnum innyflum er svolítið of mikið. Hvað í andsk….. gengur mönnum eiginlega til? Er það virkilega til of mikils mælst að menn takið með sér og komi í sorpílát því sem menn ekki éta eða vilja hirða? Fyrir utan það að henda slógi aftur í vatnið viðheldur aðeins ormi og óværu í fiskinum. Ef menn geta ekki hugsað sér að taka slóg með sér, þá er skárri kostur að urða það í móanum þannig að vargurinn komist ekki í það og beri orm og egg aftur í vatnið.









Senda ábendingu