Flýtileiðir

Kleifarvatn 17.júlí

Jú, verð að setja svona mynd á söguna því ég fékk einn mjög vænann urriða og missti annan.  Stóri bróðir fékk einn líka.  Betri helmingurinn kom heim með öngulinn í rassinum.

Get ekki orða bundist yfir umgengni manna við vatnið.  Maður er orðinn nokkuð vanur því að flækjast í girnisafgöngum og ýmsu drasli sem menn skilja eftir sig.  En, að festa í plastpoka í vatninu með haus og úldnum innyflum er svolítið of mikið.  Hvað í andsk….. gengur mönnum eiginlega til?  Er það virkilega til of mikils mælst að menn takið með sér og komi í sorpílát því sem menn ekki éta eða vilja hirða?  Fyrir utan það að henda slógi aftur í vatnið viðheldur aðeins ormi og óværu í fiskinum.  Ef menn geta ekki hugsað sér að taka slóg með sér, þá er skárri kostur að urða það í móanum þannig að vargurinn komist ekki í það og beri orm og egg aftur í vatnið.

One response to “Kleifarvatn 17.júlí”

  1. betri helmingurinn Avatar
    betri helmingurinn

    …já, það verður nú að segjast að rassinn á betri helmingnum er bara alveg að verða eins og vel notaður nálapúði 🙂

    Líkar við

Senda ábendingu

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *