Skruppum í Meðalfellsvatnið í gær, sem var lítið spennandi. Væntanlega var eins farið með fiskinn og mig, mér fannst hávaðinn og lætin við vatnið aðeins of mikil. Látum það vera að menn slái blettinn sinn eða snyrti einn og einn runna með bensíngræjunum, en 20 feta spíttarar á fullu gasi á vatninu eru nú ekki alveg á top 10 óskalistanum mínum á fallegum laugardegi. Já, ég er fúll enda fékk ég ekki einn einasta fisk.









Senda ábendingu