
The Beauty
Klassíkt votfluga sem kom fyrst opinberalega fyrir sjónir veiðimanna í bók Mary Orvis Marbury, Favorite Flies árið 1892. Mary hafði ekki mörg orð um þessa flugu, en sagði hana fancy, sparlega hnýtta og í uppáhaldi margra veiðimanna. Þess má geta að fluguna tók Ray Bergmann einnig upp á sína arma í bók sinni Trout árið 1938 og fór síst fleiri orðum um hana heldur en Mary.
Mér spakari áhugamenn um votflugur segja hana enska að uppruna sem vissulega er líklegt, en þó alls ekki víst, því einu heimildir um hana má finna vestan Atlantsála. Þess verður að geta að veraldarvinur FOS (vinur á veraldarvefnum) sem búsettur er á Englandi, hélt því statt og stöðugt fram að þetta væri ensk fluga og var hreinlega miður sín að finna ekki gamla tímaritsgrein sem sannaði mál sitt. Í staðinn sendi hann mér þá mynd sem hér er notuð, með loforði um að skjóta á mig greininni þegar hún kæmi í leitirnar. Uppfæri þessa lýsingu ef greinin kemur í leitirnar.
Sjálfum finnst mér þessi klassíska votfluga með þeim fallegri, litadýrð hennar en engin en andstæður efnis þeim mun meiri og ættu að vekja athygli fiska.
Höfundur: óþekktur
Öngull: #10 – #14 votfluguöngull
Þráður: svartur
Skott: fjöður úr perluhænu
Búkur: grá ull*
Vöf: ávalt silfur tinsel
Vængur: fjöður úr perluhænu
Haus: svartur, lakkaður
* einhverra hluta vegna hafa síðari tíma uppskriftir sagt búkinn hnýttan úr gráu flosi, en hér er stuðst við elstu uppskriftina sem ég fann og þar var getið ullar.
