Súkkulaðifrauð

Þannig að því sé haldið til haga, þá er engin sérstakur höfundur að þessari flugu. Hún er til í ótal afbrigðum og hægt að finna hana undir næstum jafn mörgum heitum á netinu. Ástæðan fyrir því að hún birtist hér er einfaldlega til að gefa smá innsýn í það sem leynist í ‘standard’ fluguboxinu hjá undirrituðum.

Þetta er í raun afar einfaldur buzzer sem á að líkja eftir brúnni klekju (e. emerger) ýmissa flugna sem hangir í yfirborði vatnsins. Eini munurinn á þessari flugu og hefðbundum buzzer er að til að létta undir með klekjunni þar sem hún bíður þess að komast upp á yfirborðið, þá hefur smá frauði verið bætt við haus hennar.

Undirritaður hefur haft þessa flugu í stærðum #14 og #16 en náfrænku hennar sem ætlað er að líkja eftir klekju stóru toppflugunnar, hef ég hnýtt svarta og silfraða í stærð #10 og #12 og til aðgreiningar kallað hana Lakkrísfrauð.

Höfundur: óteljandi
Öngull: emerger eða grubber (#14 – #16)
Þráður: súkkulaðibrúnn, sverleiki að eigin vali
Vöf: koparvír
Búkur: hnýtingarþráðurinn
Hnappi: frauð
Haus: örlítið af brúnu Ice Dubbing ef vill, annar bara brúnn, lakkaður

Hér að neðan má sjá eitt af ótalmörgum myndböndum sem er hægt að finna á veraldarvefnum af sambærilegri flugu.