Mýsla

Mýsla Gylfa Kristjánssonar hefur fyrir löngu unnið sér fastan sess hjá veiðimönnum. Hún er sögð fyrsta kúpuflugan sem er hönnuð á Íslandi og sé það rétt þá er hún væntanlega kominn nokkuð til ára sinna.

Í fyrstu var hún aðeins fáanleg á einkrækju fyrir silunginn en hefur síðan stækkað og er nú fáanleg á þríkrækju fyrir laxinn sem hún ku æsa óhóflega. Lag Mýslunnar er þannig að hún snýr öfug í vatninu og festist því síður í botni heldur en ella.

Lita samsetning flugunnar er nokkuð kunnugleg, þegar kemur að silungi; svart, rautt og silfrað.

Höfundur: Gylfi Kristjánsson
Öngull: Grubber 8 – 16
Þráður: Rauður 8/0
Broddur: Silfur tinsel vafið beint á öngulinn
Vængur: Svört andarfjöður*
Kragi: Rautt dub
Haus: Vaskakeðja í yfirstærð m.v. öngul

* Hér verð ég víst að setja varan á, ég nota svarta andarfjöður án þess að vita fyrir víst að Gylfi hefði samþykkt það. Glöggur lesandi nefndi að í vænginn væri notuð fjöður úr gæs, sem er raunar ekki ólíklegt.

BleikjaSjóbleikjaUrriðiSjóbirtingur
10,12,14,1610,12,14

Ívar í Flugusmiðjunni tók þessa flugu til kostanna, eins og sjá má í myndbandinu hér að neðan:

Create a website or blog at WordPress.com