Gullið

Fyrir nær 30 árum síðan setti Kári Ölversson saman fyrstu útgáfu þessarar flugu fyrir Veiðivötn. Þá var flugan töluvert þyngri heldur en við þekkjum hana í dag og hnýtt með þverhaus. Ástæða þess að fyrsta útgáfa hennar var þyngri var einfaldlega sú að á fæðingarári flugunnar var fátt um þungar línur til að koma flugunni niður í Vötnunum, en þegar úrval af þyngdra lína fór að aukast, var flugan einfölduð nokkuð og létt, hnýtt með kúlu í stað þverhauss. Það er nú samt ekki lengra en svo að þverhausinn var í umferð að undirritaður sá hana fyrst þannig hjá Kára og þótti hún nokkuð glannaleg. Það álit mitt vék þó fljótlega þegar fyrsti urriðinn vék sér að flugunni og tók með látum.

Í dag er svo komið að flestir Vatnakarlar og -kerlingar eru með þessa flugu í sínum boxum, enda flugan gjöful með eindæmum. Flestir eru trúir upprunalega litnum í skottinu, en til eru þeir sem vilja eiga hana líka með gulu skotti, jafnvel úr UV marabou, svona til vonar og vara ef urriðanum tekur að leiðast sú hefðbundna.

Smekkur manna hefur mikið breyst á 30 árum og væntanlega þykir fáum hún jafn glannaleg og mér þótti hún á sínum tíma. Smekkur urriðans hefur ekkert breyst, hann er enn sólginn í þessa flugu.

Kári var svo vinsamlegur að hnýta Gullið í upprunalegu mynd sinni fyrir FOS og festa á mynd sem sjá má hér að neðan. Auk þess hefur hann birt mynd af ráðlögðum skammti flugunnar fyrir Veiðivatnaferðir næsta sumars.

Höfundur: Kári Ölversson
Krókur: Kamasan B175 #6 eða sambærilegur
Haus: gull kúla 4.0 mm
Þráður: rauður
Skott: Ginger Marabou + 6 þræðir flassabou
Búkur: Tinsel Chenille Gold – large
Kragi: rauður hnýtingarþráður