GRÁBRÓK

Þær þurfa ekki alltaf að vera flóknar, flugurnar sem gefa þegar allt annað bregst, þegar Pheasant Tail skreppur í frí og Héraeyrað virðist ekki alveg ganga í augun á fiskinum. Hér er ein sem sannaði sig sumarið 2024 í Hraunsfirðinum, Hlíðarvatni í Selvogi og Hlíðarvatni í Hnappadal.

Einföld fluga í hnýtingu sem sver sig í ætt við framangreindar flugur, fylgir þekktu sköpulagi þeirra en kemur með örlítið tvist á litasamsetninguna. Skemmtilegur grár litur íkornadubbsins virðist ljá henni einhvern svip af hornsíli þegar hún er komin í vatnið. Hér er rétt að taka það fram að litur íkornadubbs getur verið örlítið mismunandi eftir pakkningum, það tók FOS þrjár tilraunir að fá rétta gráa litinn.

Höfundur: Tómas Auðunn Þórðarson
Öngull: Hefðbundin 10 – 14
Þráður: Svartur
Skott: Fasanastél
Vöf: koparvír eða brúnn
Búkur: Natural gray íkorna dubb frá SLF spiky dubbing
Vængstæði: Fasanastél
Frambolur: sama og búkur

BleikjaSjóbleikjaUrriðiSjóbirtingur
12 & 1410, 12 & 14