Ekki Skues

Sumarið 2011 rakst ég á eitthvert grænt kvikindi sem skolað hafi upp að bakka Vífilsstaðarvatns og hef enn ekki hugmynd um hvaða fluga/púpa þetta var. Ég hef haft augun hjá mér þegar ég hef verið að fletta flugum á vefnum eftir þettta, en ekki fundið nákvæmlega þessa flugu sem eftirlíkingu þess sem ég sá. Sú sem kemst næst fyrirmyndinni er Skue‘s Nymph, ekki alveg þó.

Með fullri virðingu fyrir G.E.M. Skues ákvað ég að taka hefðbundna uppskrift hans af þessari ævagömlu púpu og poppa hana allverulega upp, ef mér tækist að líkja eftir Vífó-kvikindinu. Næstum, kannski ekki alveg en ég læt slag standa og set hana hér með á bloggið.

Höfundur: bræðingur
Öngull: Hefðbundin 10 – 12
Þráður: Olive Dun 8/0
Skott: Natural yellow/brown cock hackle
Vöf: Fínn koparvír
Búkur: Caddis Green Ice Dub (2/3), Héri (1/3)
Kragi: Natural yellow/brown cock hackle

BleikjaSjóbleikjaUrriðiSjóbirtingur

Create a website or blog at WordPress.com