
Dýrbítur
Mannskaðafluga sem glepur svo stóra fiska að veiðimanni er bráð hætta búinn er haft eftir höfundi hennar, Sigurði Pálssyni. Eitt er víst að þessi fluga er gjöful og hefur verið framanlega í boxum veiðimanna frá því hún hóf ónefnd feril sinn í Laxá í Dölum.
Nafnið fékk hún 2004 eftir að hafa sett í 23 punda sjóbirting í Litluá í Kelduhverfi eins og Kári Schram sendi FOS ábendingu um sbr. „Dýrbíturinn [hóf] eiginlega vegferð sína og sögufrægan ferill sem ein helsta alhliða fluga landsins í Litluá maí 2004 þegar hún veiddi næstæðsta ferskvatns fisk ársins á íslandi sem var og stærsti fluguveiddi Sjóbirtingur í Evrópu og fékk nafn sitt samdægurs frá höfundi.“
Höfundur: Sigurður Pálsson
Öngull: Hefðbundin 6-12
Þráður: Í sama lit og flugan 6/0
Skott: Marabou fjöður og 6-7 strimlar silfur flashabou
Búkur: Rúmur helmingur (aftari) úr silfur chenille tinsel. Rest chenille í sama lit og flugan.
Skegg: Hringvafin hænufjöður í sama lit og flugan
Bleikja | Sjóbleikja | Urriði | Sjóbirtingur |
---|---|---|---|
Bleikur 6,8,10 | Svartur 6,8,10 |
Eiður Kristjánsson setti í þetta líka snotra myndband af því hvernig maður hnýtir Dýrbít á gúmmílöppum: