Carey Special

Þetta er fornfræg fluga frá Bresku Kólumbíu á vesturströnd Kanada og hún á sér farsæla sögu meðal veiðimanna þar. Ekki er vitað með vissu hvenær þessi fluga fékk viðurnefnið Carey Special en það var örugglega á millistríðsárunum 1918 – 1934 eins og ég hef rakið í smá grein hér á FOS.

Það má næstum segja að þessi fluga sé einnar efnis fluga, þ.e. upprunalega var aðeins notast við þrjár mismunandi fjaðrir fasana í hana og svartan hnýtingarþráð.

Flugan er skemmtileg blanda kanadískra urriðaflugna og hefðbundinna enskra votflugna, upprunalega löng og mikil, hlutföllin í henni þvert á allar forskriftir og langt og mikið hringvaf hennar lagðist jafn langt eða lengra aftur en skott hennar, sem var þó þegar í lengra lagi. Síðara tíma útfærslur þessarar flugu hafa flestar skipt fasanafjöðrinni í búki hennar út fyrir dub, garn eða umfangsmeira gerviefni eins og chenille. Einhverjum hnýtara hefði þótt þær breytingar nóg til að skýra hana upp á nýtt, en það er ekki raunin með Carey Special, upprunalegt heiti hennar hefur fengið að halda sér.

Uppskriftina hér að neðan má finna í bók Roderick Haig-Brown, The Western Angler sem kom út árið 1939.

Höfundur: Thomas Carey
Öngull: legglangur #2 – #12
Þráður: Svartur 8/0 / 140
Skott: fasanafjöður af aftanverðu baki fuglsins
Vöf: þráðurinn
Búkur: stélfjöður fasana
Kragi: hringvafin hálsfjöður fasana
Haus: svartur, lakkaður

Það hnýtingarmyndband sem samræmist þessari upprunalegu uppskrift einna best að mínu mati gerði Matt O’Neal árið 2001, jafnvel þó inngangur hans sé ekki alveg kórréttur.