
Autumn Ordie
Autumn Ordie er, eins og nafnið gefur til kynna, fluga sem veiðimenn nota gjarnan þegar haustar við skosku heiðarvötnin. Flugan er raunar ekkert annað en önnur litasamsetning þeirrar margfrægu Lock Ordie, kennd er við Ordie vatn skammt austan við Tay sem er lengsta á Skotlands. Lock Ordie er eignuð Rod nokkrum Denson, en hver er ábyrgur fyrir litasamsetningu Autumn Ordie veit ég ekki. Við ánna Tay verður vart stigið niður fæti án þess að reka tærnar í sögufræga veiðistaði og þangað eiga margar sögufrægar flugur ættir að tekja.
Sérstaða þessara flugna er að það er enginn búkur á þeim, aðeins hringvafðar hænufjaðrir í þremur (eða fleiri) litum. Sérstaklega einföld fluga að hnýta og kemur svona líka skemmtilega út.
Höfundur: óþekktur
Öngull: Hefðbundin votfluguöngull 8 – 12
Þráður: Svartur 8/0 eða 70
Aftasta hringvaf: ljósbrún / gul hænufjöður
Miðvaf: rauð hænufjöður
Fremsta hringvaf: svört hænufjöður
Haus: svartur
Hér smellir Martyn White í þessa þetta afbrigði Lock Ordie:
