
Atlas
Frá því þessi fluga varð til í tímaþröng vorkvöld eitt árið 2021, hefur hún heldur betur sett mark sitt á aflabrögð veiðimanna. Einföld fluga, pottþétt og heimsfræg litasamsetning hennar, hefur síðan fært mörgum veiðimanninum staðbundna og sjógengna bleikju, urriða hér heima og ekki síst harra (Grayling) í Wales og á Englandi.
Flugan stimplaði sig inn í jómfrúarferð sinni í Sogið og færði höfundi sínum einar sjö bleikjur fyrsta hálftímann og þannig hófst saga hennar. Nokkur fleiri orð um tilurð flugunnar og sýnishorn af öðrum flugum sem Ólafur Hilmar hefur lagt fram í Febrúarflugum má sjá hérna.
Höfundur: Ólafur Hilmar Foss
Öngull: Hanák H490BL (#16-14)
Kúla: Slotted Black Nickel (3.0 – 3.5mm)
Broddur: Rauður hefðbundinn 12/0 þráður + UV Resin
Búkur: svart vinyl rib (midge)
Kragi: Hare’e Ice Dub – Harder’s Bloody Black (HI177)
Hann Eiður Kristjánsson brá fyrir sig betri græjunum fyrir nokkru síðan og hnýtti Atlasinn af sinni alkunnu snilld eins og sjá má hér að neðan:
