Skruppum í jómfrúarferð í Hítarvatnið. Komum okkur fyrir í hrauninu austan við Hólm og veiddum mest þar og inn að Hólmi, en kíktum líka í víkina vestan við tangann. Fengum 2 á spún, 2 á flugu og 8 á maðk. Ekkert síðri veiði rétt fyrir hádeg heldur en að kvöldi. Nokkur vindur sem losaði okkur við fluguna sem varð skæð þegar lygndi. Mikil traffík við vatnið og margar sögur af fyrri afrekum (60+ stykki á 4 tímum o.s.frv.) Fórum sátt miðað við afla annarra á staðnum þótt stærð fiska hafi ekki verið neitt rosaleg, frá 1/2 pundi og upp úr.
-
Hítarvatn 22.-24.júní
Höfundur:
-
Meðalfellsvatn 21.maí
Við bræðurnir skruppum í Kjósina um kl.18 og áttum verulega rólega stund fram til kl.19 þegar ég missti einn á skerinu út frá syðri bátaskýlunum sem tók Peacock. Rólegheit alveg fram til kl.22 þegar vatnið stillti verulega og ég náði tveimur urriðum á eigin þurrflugur framan við syðri bátaskýlin.Höfundur:


