FOS
  • Febrúarflugur
  • Færslur
  • Flugur
  • Grúsk
    • FiskurinnNokkrir punktar um hegðun fisksins sem við erum að eltast við.
    • GreinaskrifGreinar og fréttir sem komið hafa fram á hinum og þessum miðlum á liðnum árum.
    • GræjurNokkrar greinar um veiðistangir, hönnun þeirra og eiginleika.
    • HnútarNokkrir góðir hnútar
    • HnýtingarÝmislegt sem tengist veiðiflugum, hnýtingu þeirra og hönnun.
    • Hnýtingarefni
    • KannanirÝmsar kannanir sem FOS.IS hefur gert meðal lesenda sinna, niðurstöður þeirra og hugleiðingar út frá þeim.
    • KasttækniAlltaf gott að rifja upp kasttæknina.
    • Lífríkið
    • Línur og taumarÝmislegt gagnlegt sem lýtur að flugulínum og taumum.
    • MaturNokkrar uppskriftir og umfjöllun um þann mat sem má gera sér úr aflanum.
    • Veiðiferðir
    • Veiðitækni
    • ÞankarÝmsir þankar og hugleiðingar
    • ÆtiðAllt sem fiskurinn leggur sér til munns.
  • Vötnin
  • Myndir
  • Töflur
    • AFTM
    • Alfræði
    • Byrjendur
    • Festingar
    • Fiskurinn
    • Flóðatafla
    • Hlutföll
    • Krókar
    • Kúlur & keilur
    • Lög og reglur
    • Taumar og flugur
    • Þráður
  • Tenglar

  • Haustveiði, Hlíðarvatn 9.okt.

    10. október 2010
    Veiði

    Upp

    Forsíða

    Eins og tíðarfarið hefur verið síðustu vikur er fátt sem mælir gegn því að skreppa til veiða og njóta haustlita og veðurblíðu. Og, það var einmitt það sem við hjónin í ónefndu veiðifélagi ákváðum á föstudag. Við sem sagt hringdum á undan okkur vestur í Hnappadal og fengum leyfi að renna í Hlíðarvatn enn eitt skiptið á þessu ári. Afraksturinn varð nú ekkert rosalegur, eiginkonan tók 6 urriða á Black Ghost (eins og venjulega) og ég tók 2 á Svartan Dýrbít. Aðrir tveir komu á land á maðk og þar með er sagan öll. Sjálfur eltist ég töluverðan tíma við bleikjur inn að Álftatanga en þær voru greinilega í hryggningarstuði og vildu ekkert með flugurnar mínar hafa. Urriðarnir sem við hjónin tókum skiptust jafnt í hryggnur og hængi. Hryggnurnar tómar eða með óþroskuðum hrognum og hængarnir fullir af æti. Hryggningu urriðans því greinilega lokið þetta haustið og nú keppast þeir við að fita sig fyrir veturinn. Það vakti athygli mína að töluvert var af Vorflugu á ferðinni sem skv. fræðunum er með seinasta móti árs. Svona hefur nú veðráttan verið mild í haust.

    Af sögunni endalausu; Vatnshæð. Við áttum smá spjall við Albert á Heggsstöðum og sagði hann okkur að yfirborðið hafi ekki orðið lægra í 70 ár í Hlíðarvatni. Hólmi einn í vatninu, sem í versta falli hafi hingað til gægst upp úr því, hafi komið allur upp í sumar og til séu mælingar m.v. eðlilega vatnshæð upp á 7 m dýpi á þennan hólma. Í byrjun ágúst skaut ég á að 3 m vantaði í vatnið og miðaði ég þá við það sem ég hef séð hæst í því, sem var greinilega vanmat. Annars hefur aðeins hækkað í vatninu síðustu vikur, lítið þó. Albert taldi að þurrkarnir í sumar og lélegur vatnsbúskapur komi örugglega til með að hafa áhrif á nýliðun næstu ára.

    Til gamans útbjó ég þetta kort af vatninu og teiknaði inn í það yfirborð vatnsins eins og ég upplifði það í sumar.

    Höfundur:

    Kristján Friðriksson
  • Meðalfellsvatn, 19.sept.

    19. september 2010
    Veiði

    Upp

    Forsíða

    Það fór nú eins og mig grunaði. Fallegu lýsingarnar af háttarlagi fiskanna í Meðalfellsvatni urðu til þess að við hjóninn skruppum þangað upp eftir í dag og auðvitað slóst nýjasti fluguveiðimaður Íslands með í för. Líkt og í gær var ágætis veður, aðeins kaldara þó. Eitthvað var ég slakari heldur en í gær, missti fleiri fiska sem ég kenni auðvitað slakari tökum um, en heim kom ég þó með 7 stk. Frúin tók þrjá og missti alveg helling, helst þegar þeir voru komnir á loft og stefndu í greipar henni. Sjálf hafði hún á orði að e.t.v. væri sniðugt að taka með sér háf og venja sig á að góma þá þannig. Stóri bróðir tók 7 stk., flesta á flugu sem hann hnýtti sjálfur sem bara jók á kikkið síðan í gær. Sannkallaður ‘killer’ á ferð.

    Höfundur:

    Kristján Friðriksson
  • Meðalfellsvatn, 18.sept.

    19. september 2010
    Veiði

    Upp

    Forsíða

    Við bræðurnir gerðum okkur ferð upp að Meðalfellsvatni upp úr hádegi. Prýðilegt veður, þurrt og sólríkt með köflum. Ég furðaði mig á því þegar við komum að vatninu, hversu þétt tveir veiðimenn stóðu úti við ‘Stóru steinana’ en skýring fékkst á því eftir stutt spjall við annan þeirra þegar hann kom í land. Bleikjan var vaðandi í torfum á þessum slóðum og lítið annað að gera en láta einhverja svarta og rauða flugu renna fram úr fremstu lykkju. Að vísu var fiskurinn frekar smár, en þó ekki svo að ekki mætti éta hann. Sjálfur nýtti ég tækifærið og raðaði út nokkrum af flugunum mínum, helst litlum í stærð 12-16 og ekki of búk miklum, svona til að prófa það sem var í boxinu. Þær sem gáfur helst voru; Watson’s Fancy (hefðbundin púpa og svo grönn á grubber), Krókurinn, Bleik og blá (grubber), Heimasætan (grubber). Það var greinilegt að fiskurinn var löngu hættur að hugsa um æti, hér gilti bara að pirra hann nógu mikið og draga létt í gegnum torfurnar. Kannski engin furða að síðasti dagur í vatninu er 20.sept. fiskurinn er greinilega að draga sig saman í hryggningu. Það fór svo að ég tók ein 14 stk. með mér heim og nokkuð ánægjulega minningu af sýndalátum hænga sem voru að gera sig til fyrir hryggnunum. Það var á tíma eins og David Attenbrough væri mættur á staðinn og ég væri að horfa á einhverja Top 10 náttúrulífsmynd, þvílík voru atriðin sem sett voru á svið fyrir mann.

    Aukafrétt: Stóri bróðir gaf sér loksins góðan tíma með flugustöngina og fékk sína fyrstu tvo á flugu, til hamingju.

    Höfundur:

    Kristján Friðriksson
  • Urriðavatn, 12.sept.

    12. september 2010
    Veiði

    Upp

    Forsíða

    Svona rétt til þess að drepa tímann á meðan vinnufélagar mínir fóru 9 + ???? holur á golfvellinum við Ekkjufell, skellti ég mér í Urriðavatn utan við Fellabæ. Hér væri hægt að segja margar smáar sögur af litlum bleikjum. Eftir stutta upplýsingagjöf að bænum Urriðavatni tók ég til við að skanna vatnið í leit að stóru bleikjunum. Ég hefði örugglega ekki haldið úti í rúma 2 tíma hefði veðrið ekki verið eins gott og raun bar vitni. Þær stóru liggja væntanlega enn nokkuð djúpt, eftirláta þeim smáu grynningarnar því það var það eina sem ég fann. Annars var mér tjáð að best gæfi snemm sumars og síðan að hausti þegar bleikjan dregur sig upp á grynningarnar til að hryggna. Væntanlega eru þær ekki byrjaðar að hryggna ennþá…….

    Höfundur:

    Kristján Friðriksson
  • Breiðdalsá 11.sept.

    12. september 2010
    Veiði

    Upp

    Forsíða

    Mér er bara alveg sama þótt þessi mynd sé við greinina (öngull í rassi) því þessi ferð okkar vinnufélaganna austur í Breiðdal var alveg frábær. Fyrst af öllu, lipurð starfsmanna Veiðiþjónustunnar Strengja, veðrið lék við okkur allan daginn og umhverfið alveg einstakt. Við félagarnir áttum þrjár stangir á silungasvæðinu á laugardag. Vorum nokkuð tímanlega á ferðinni á föstudagskvöldið þannig að við renndum niður að veiðihúsi að leita frétta af veiði. Í stuttu máli, fáar sögur af silungasvæðinu sem hafði beinlínis farið hamförum vegna vatnavaxta síðustu daga. Útlitið var ekki gott… en eftir eitt stutt símtal við Þröst í Stengjum var okkur boðið að taka efstu svæðin í Suður- og Norðudal Breiðdals í stað þess að eyða öllum laugardeginum í að skanna neðstu svæðin í mjög miklu vatni. Hefði ég verið með sardínudós meðferðis hefði ég væntanlega náð að fylla hana og hefði félagi minn átt ódeigan Toby hefði hann væntanlega náð einum mjög vænum laxi rétt fyrir ofan Hamarsflöt (það sem sagt gaf sig þríkrækja á ‘gamla góða’ spúninum hans). Þótt ég hafi minna en ekkert vit á laxveiðiám, þá þori ég svo sannanlega að mæla með Breiðdalsá þó ekki væri nema silungasvæðinu að vori eða snemm sumars. Stórkostleg náttúra, fallegt árstæði og frábær þjónusta hjá Strengjum. Svo skemmir ekki heldur að ég náði að sjúga í mig alls konar vitneskju um fluguveiði í ám af félögum mínum og öðrum í veiðihúsinu.

    Höfundur:

    Kristján Friðriksson
  • Hlíðarvatn, Hnappadal 5.sept.

    6. september 2010
    Veiði

    Upp

    Forsíða

    Rjómablíða, létt vestan og suð-vestan átt og vatnið upp á sitt fegursta. Vorum mætt í vatnið kl.10 og fljótlega fóru fyrstu fiskarnir að týnast á land. Fastir liðir eins og venjulega; enn hefur lækkað í vatninu. Nú er ég hættur að þora að segja til um hversu mikið vantar í vatnið. Ef við fáum enn einn snjóléttann vetur, þá lítur næsta sumar ekki vel út. Við hjónin voru mjög einbeitt og héldum okkur við fluguna allan daginn, hún með Black Ghost (10 fiskar) en ég með ýmsar aðrar; Vinstri græn, Bleik og blá, Dentist, Blue Charm og Þingeyingur auk Black Ghost (8 fiskar) þannig að samtals tókum við 18 væna fiska fram til kl.21:00 Vatnið hefur því gefið okkur 83 fiska í sumar. Ferðafélagar okkar tóku eitthvað minna á maðk.

    Höfundur:

    Kristján Friðriksson
«Fyrri síða
1 … 51 52 53 54 55 56
Næsta síða»

FOS

Allur réttur áskilinn – © 2025 – Kristján Friðriksson

  • Facebook
  • Vimeo
  • Issuu
  • YouTube
  • Instagram
  • Senda skilaboð
  • Áskrift í tölvupósti
 

    • Gerast áskrifandi Subscribed
      • FOS
      • Join 176 other subscribers
      • Already have a WordPress.com account? Log in now.
      • FOS
      • Gerast áskrifandi Subscribed
      • Skrá mig
      • Innskráning
      • Report this content
      • Skoða vef í lesara
      • Manage subscriptions
      • Collapse this bar