Mýflugur eru mikilvæg fæða silungs á öllum stigum, þ.e. sem lirfur, púpur og flugur. Sem lirfur halda þær sig mest á botni vatnsins, en leita gjarnan frá botninum þegar þær komast á púpustigið. Þegar þær síðan komast á klakstigið og umbreytast í flugur gerist það í og við vatnsborðið. Mýlirfur – Flugur sem líkja eiga…
Flugur veiða, það er ekki nokkur spurning, en til þess að þær veiði þá þurfa þær að vera á eða neðan yfirborðs vatnsins. Þessar sem eru á sífelldu sveimi í loftinu veiða sáralítið, nánast ekki neitt. Þessu lauma ég hér inn til að stoppa besservisserinn sem varð hugsað til myndanna af fiski taka flugu á…
Sumt veit maður eða þykist vita þegar kemur að því að velja flugu á veiðistað. Hvort maður fer eftir því, er allt annað mál. Fyrir veiðiferðina er hægt að gaumgæfa í þaula allt þekkt skordýralíf í nágrenninu á pappír (eða á vefnum), kíkja í veiðibækur og vinsælar flugur sem skráðar eru víðsvegar og bera þetta…
Ég heyrði það út undan mér að Veðurstofa Íslands telur september til sumarmánaða og ég sé ekkert sem réttlætir það að hirða einhverja bandbreidd af internetinu til að fá þetta staðfest. Ástæðan er afar einföld, ég er hjartanlega sammála VÍ. Sá september sem kvaddi okkur í ár var reyndar með afbrigðum mildur, víðast hvar, framan…
Moppan Þessi fluga er sérstaklega einföld í hnýtingu, svo einföld að margir hnýtingaleiðbeinendur hafa tekið hana upp á sína arma sem fyrstu flugu nemenda sinna. Flugan líkir ágætlega eftir lirfu- og púpustigi fjölda skordýra þannig að hún gæti verið n.k. alhliða fluga í boxi veiðimanna. Litir flugunnar spanna nær allt sjáanlega litrófið og raunar vel…
Green Weenie Af skömm minni kemur hér enn ein þeirra flugna sem margir veiðimenn elska að hata. Þessi fluga er með þeim allra einföldustu í hnýtingu, aðeins eitt hráefni og kúla ef hnýtari vill. Þótt Lefty Kreh hafi fullyrt að „Ef það er ekki chartreuse, þá virkar það ekki.“ þá virkar þessi einfalda fluga í nær öllum…