Þessar vikurnar stendur Loon outdoors fyrir hnýtingarkennslu á netinu. Um er að ræða fjórar kennslustundir í beinni útsendingu, ein í hverri viku janúar. Einhverjir nátthrafnar hafa eflaust vakað yfir fyrsta tímanum sem var 6.janúar, en fyrir þá sem sváfu á sínu græna þá er hægt að horfa á upptöku af honum með því að smella hérna.
Næsti þáttur er á dagskrá aðfaranótt föstudagsins 14.janúar klukkan 2 eftir miðnættið og hægt verður að horfa á hann á Livestream. Upptaka af þættinum verður gerð aðgengileg hér á FOS.IS eins fljótt og auðið verður.